Team Vasa
Fyrir ykkur sem hafði of lítið að gera í vinnunni
28.04.2008 00:54:22 / vasa

2 æfinga í dag, hjólaskíði og hjól H=650

Tók tvær æfingar í dag sunnudag, fyrst hjólaskíðaæfingu sem lauk eftir 3 km þegar ég flaug á hausinn og ... það er vont að detta á malbiki.

Hjólaði síðan 25 km á góðum hraða.

Dagurinn skilar 13 km í Hringveginn.

BO

» 1 hafa sagt sína skoðun

24.04.2008 21:37:18 / vasa

Hjólaði 50km! H=637km

Tók langa hjólaæfingu í dag, sumardaginn fyrsta.  Hjólaði 50 km (20-15-10-5) með 15 mín stoppi á milli.  Mjög töff.

Till later,
BO

» 0 hafa sagt sína skoðun

24.04.2008 21:35:15 / vasa

Hjólaði 30 km! H=617

Tók kvöldæfingu á mánudaginn, hef ekki komið henn á netið fyrr en nú.  Massakeyrsla.  Nú er málið að ná pústinu aðeins upp fyrir Fossavatnsgönguna www.fossavatn.com

Over,
BO

» 0 hafa sagt sína skoðun

20.04.2008 23:38:01 / vasa

2 æfingar í dag... H=605

Gekk á Akrafjallið í morgunsárið og tók síðan hjólaæfingu seinniparinn.  Hjólaði 15 km.

Fæ 9 km fyrir Akrafjallið og 6 km fyrir hjólið.  Hringvegurinn stendur þá í 605 km.

Þar til á morgun,
BO


» 2 hafa sagt sína skoðun

19.04.2008 20:00:55 / vasa

H=590

Hjólaði 30 km í þremur skömmutum, 15+10+5sprint.  Massabrennsla, sjáum til hvort ég hundskist ekki af stað núna....  Verð að hætta að tala um það og fara að gera það.

BO

» 0 hafa sagt sína skoðun

14.04.2008 10:22:36 / vasa

Léleg æfingavika

Tók 25 km hjólaæfingu í síðustu viku, lofa bót og betrun.

BO

» 1 hafa sagt sína skoðun

14.03.2008 00:58:05 / vasa

Góð æfingavika, nokkrar æfingar skráðar í einu. H=+568 km

Þetta hefur verið ágætis æfingavika,  því miður hef ég ekki verið nógu samviskusamur að færa þær inn en lofa bót og betrun.

Æfinga 1 var á laugardaginn 8.
Hjólaði 40 km, lengsta hjólaæfing í 2 ár, tók vel á.
40 km gefa mér 16 km í hringveginn.

Æfing 2 var á mánudaginn 10.
8 km á brettinu, hef ekki farið á það ANSI lengi.

Æfing 3 var í gær, miðvikudag.
Hjólaði 30 km í WorldClass á Seltjarnanesi, þrælfín aðstaða.  Mikil keyrsal og mikil brennsla.
=> gefur 12 km í hringvegskeppnina

Æfing 4 var áðan.
Hjólaði aftur 30 km.  Rassinn orðin ansi aumur af öllum þessum hjólaæfingum.  Þá er bara eitt að gera, hjóla meira!
=> gefur 12 km í hringveginn.

Till later,
BO

» 4 hafa sagt sína skoðun

06.03.2008 00:04:54 / vasa

og meira á hjólinu... H=520!!!

tók kvöldæfingu, hjólaði 15 km á fullu blasti.

V-ið er stillt í 17,7

BO

» 1 hafa sagt sína skoðun

06.03.2008 00:03:51 / vasa

Kominn af stað, loksins... H=516km

Nú er komið nóg af slugsi, hjólaði 27,5 km í fyrradag, mánudag.

BO

» 0 hafa sagt sína skoðun

08.02.2008 04:14:42 / vasa

H=> 505 km

Jæja,

best að kvitta fyrir skíðaferðina.  Fór til Austurríkis á gönguskíði með Magga, Möggu, Hannna og Bændaferðum.  Þrælfín ferð þó kvöldvaktirnar hafi hugsanlega verið full erfiðar.

 Gekk samanlagt 110 km á 5 dögum, það dugar ekki í Vasa form og þar með er næstu Vasa göngu frestað um ár!!!!

 Það er ekki á markmiðalistanum að drepa sig þett árið ;-)

 Till later,

BO


» 2 hafa sagt sína skoðun

23.01.2008 00:53:13 / vasa

3 æfingar í einu... 2xskíði 1x hjól H=395

Fór á gönguskíði í Heiðmörk á laugardaginn, fann ekki sporið þannig að það varð hálfgert hark.  H=4

 Fór í Bláfjöll á sunndaginn, frábært veður, fínt færi, ömurleg umferðarteppa!!!  H=9

Hjólaði 10 km áðan algerlega í botni.  H= 4

Nú styttist í skíðaferðina...

BO

431


» 1 hafa sagt sína skoðun

06.01.2008 17:42:31 / vasa

30 km á hjólinu, þolið aðeins að koma til H=378 V=13,7

30 km á hjólinu + magi og góðar teygjur.  30 km á hjólinu gefa mér 12 km í Hringveginn.  V-ið er líka farið að mjakast niður.  Veitir ekki af ...

BO


» 1 hafa sagt sína skoðun

02.01.2008 23:10:20 / vasa

20 km á hjólinu! H=366

Tók 20 K á hjólinu í lok dags, fín keyrsla en bakið og rassinn að kvarta.  Rassinn jafnar sig, hitt er hugsanlega verra ;)

 

Til later,

BO


» 0 hafa sagt sína skoðun

02.01.2008 00:33:43 / vasa

Nýtt ár með endurnýjuðum áramótaheitum... H=358 V=15,3

... Áramótaheit voru strengd sem aldrei fyrr í gærkvöldi, nú skal takast að standa við einhver þeirra ;)

Hjólaði 25 km áðan á góðri keyrslu.  Gefur 10 km í Hringvegarkeppnina. Planið er að vera duglegur á hjólinu á meðan hnéð er að ná balance.

 Það hallar allhressilega á mig í keppninni um hringveginn, Magga er komin 833km en ég bara 358 km.  www.maggaelin.blog.is , til upprifjunar þá er gengur keppnin út á það hvort okkar verður fljótari að hlaupa (eða ég með öðrum aðferðum) hringveginn.

 V-ið þarf að fara niður um 15 kg á næstu tveimur mánuðum.  Það gæti orðið dálítið töff...  sjáum til.

 Jæja, off í bili.

 BO


» 1 hafa sagt sína skoðun

10.12.2007 01:02:47 / vasa

Akureyri í frábæru veðri...

... tók gönguæfingar í Hlíðarfjalli um helgina, klukkutími á laugardag og einn og hálfur í dag.  Fyrsta skíðaferðin í vetur.  Frábært færi og flott veður.

 Heilræði dagsins:

Því meira sem þú fitar þá sem þú umgengst daglega því grennri sýnist þú


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 10